Herra Skítsama
26.08.2006 11:43:49 / Gaui

Mánuður síðan

Komiði sæl

Það er meira en mánuður síðan að ég bloggaði seinast og vonandi getur þessi bloggfærsla orðið stór og góð. Margt og mikið búið að gerast á þessum tíma. Ég er allavega eld hress þar sem að enski boltinn er byrjaður að rúlla. Var farinn að fá fráhvarfseinkenni að hafa ekki getað horft á aðmennilegan fótbolta síðan 9 júlí þegar HM kláraðist. Mínir menn í Manchester United eru að ná góðu starti.Spila alveg frábæran fótbolta og hafa bara verslað einn leikmann í allt sumar sem kostaði líka sitt eða 18,3 miljónir punda.

Ég hef spilað á 3 tónleikum síðan ég bloggaði seinast sem voru auðvitað allir misgóðir. Ég spilaði í Galtalæk og það var ógeðslega gaman. Ég fékk Hugrofsmenn með mér þangað að hype-a fyrir mig þar sem að Jóel komst ekki og þeir voru Game þegar ég spurði þá. Gekk ógeðslega vel. Náðum góðri stemmingu. Þeir tóku 1 lag líka sem heitir Ást og virkaði vel. Á menningarnótt spilaði ég á tvennum tónleikum. Fyrst spilaði ég á Lækjargötu fyrir utan Íslandsbanka og náði gríðarlegri stemmingu þar og náði að halda fólki vel einbeittu að horfa á showið og frá heimildarmanni náði ég að halda í sem flesta áhorfendur svo ég er sáttur. Jóel var kominn á sinn stað með mér á sviðinu þá. Lenntum í góðu spjalli við Óla Palla á rás 2 um nöfn á rapp hljómsveitum. Seinni tónleikarnir þennan dag voru þeir sem ÓmarÓmar á hiphop.is var að halda. Ágætur fjöldi mættur en var rosalega dreyfður hópur yfir stórt svæði. Graffarar að spreyja verk á veggina og góð stemming í fólkinu. Ég samt var ekki alveg að fíla mig að spila þarna. FLestir virtust vera of cool til að geta verið að fíla aðra(nema að enginn fílar hvorn annan) nema að þetta séu allt saman bara vinir. Við Jóel tókum okkar gigg þar og gekk ágætlega. Tókum upp skot fyrir Myndbandið við Kinkaðu Kolli sem ég var að fá aðvita í gær um að væri hætt við. Fokking bögg.

Talandi um tónlistina mína þá hef ég bætt við 2 lögum inn á www.myspace.com/herraskitsama annað lagið heitir Litla Amerika og hitt heitir Það var ritað. Bæði lögin eru alveg ómixuð og munu ekki verra inn á plötunni minni Virtu Það. Ég var að taka upp lag með nýju hljómsveitinni minni um daginn sem er ekki ennþá komin með nafn og það lag ætti að fara að lýta dagsins ljós innan við eina viku. Svo virðist líka loksins að vera að koma greið leið inn í stúdíó svo ég fer að rúlla þessu öllu saman í eina feita með tímanum.Svo geta hlustendurnir farið í vímu þegar þeir heyra þetta.

Búinn að panta mér ferð til Kanarí á næstu Páska, geri það með góðum fyrir vara enda kostar þetta ekki shit. Er svo að fara að versla mér miða til Manchester og ætla að sjá mína menn spila í Mekka eða öðru nafni Old Trafford.

Jæja tölvan mín hrundi um daginn og allt út af, allir textar og allir takar sem ég hef gert svo ég er farinn að gera eitthvað til að setja upp tölvuna aftur og jafnvel geri 1 stykki beat.

Kv.

Herra Skítsama


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.07.2006 16:36:44 / Gaui

22 júlí

Í dag er stór dagur, móðir mín er orðin hálfrar aldar gömul í dag. Merkilegur áfangi það... Í nótt er fyrsta nótin í meira en 3 vikur sem ég sef meira en 5-6 tíma... ég fór yfir 10 tíma svefn sem var alveg ÓGEÐSLEGA þægilegt. Vaknaði og er búinn að horfa á 2 bíómyndir í dag... það eru Hostel og Betrailed (held að hún heitir það með Clive Owen og Jennifer anniston, og jú RZA og Xzibit). Fínar myndir báðar tvær og góðar hugmyndir á bakvið þær.

Ég átti að spila í party í kvöld en ég dró mig út úr dagskránni... og ekkert meira um það að segja. Ég er líklegast að spila um versló út á landi og svo á menningarnótt líklegast líka að spila og þá í bænum. Á eftir fer ég að taka upp skot fyrir myndbandið mitt við Kinkaðu Kolli( ég veit að það er langt síðan að lagið var í spilu), seint er betra en aldrei.

2 partý í kvöld... damn það verður fjör en er ekki ennþá búinn að ákveða hvort ég drekki eða ekki... kemur í ljós, en hey það er frítt vín... ég hef ekki sagt oft nei við því hingað til.


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 09:36:43 / Gaui

Daaaaaaaaanmörk

KOmiði sæl, ég hef ákveðið að kasta inn einni færslu og athuga hvort ég fái aftur þá löngun að deila með almenningi skoðunum mínum og daglegu lífi mínu.

Ekki á morgun heldur hinn sný ég heim aftur frá Copenhagen. Ég er búinn að vera hér í 2 vikna afslöppun sem er alveg mad nice. Bjór, djamm, chill, fatakaup, safnaskoðun, Tívólí, Hróaskelda en eitt sem er ekki nógu og sniðugt er maturinn hérna, kannski kann ég bara ekki alveg nóg á þetta. Mér finnst of lítið úrval af góðum mat. Maginn á mér fer alltaf í afeitrun á kvöldin eftir allt piparsveinafæðið sem við drengirnir erum að éta hérna úti allan liðlangan daginn. Með mér hérna úti er rappsveitin 2 Leikmenn(www.myspace.com/2leikmenn). Ég hef verslað mér alveg heilan helling, nýr fataskápur verður kynntur liggur við þegar maður fer að labba um götur smárahverfisins aftur. Búinn að kaupa mér 1 Jordan peysu, 3 boli(2 Ecko og 1 Lot 29), 2 gallabuxur(Sean John og Ecko/G-Unit), Jordan Skó, 2 New Era derhúfur, 1 Roca Wear gallastuttbuxur. Ég held að fata kaupin mín séu komin í bili, en mikið andskoti langar mig samt að kaupa mér meira, en ég samt bara veit að nú er komið nóg.

Djöfull er helvíti erfitt að versla afmælisgjafir handa stelpum. Ég er alltaf í þvílíkum vandræðum með það hvað ég á að gefa Þórunni kærustunni minni bæði á jólunum og svo líka í afmælisgjöf. (smá út úr snúningur, ég held að það sé verið að skjóta úr byssu hérna í hverfinu núna án djóks). en aftur að afmælisgjöfum kvennmanna. Er þetta bara ég eða eru allir karlmenn svona vita ekkert hvað á að kaupa handa konum? shiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiit, þetta er vesen.

Kíkið endilega á www.myspace.com/herraskitsama fer að kasta bráðlega inn nýjum feitum lögum sem verða ekki á plötunni minni en fá samt að kíkja á netið.

bið að heilsa heim.

Kv.

Gaui


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 21:23:01 / Gaui

Á ég að hætta?

Ég er alveg hættur að nenna að blogga... en ef fólk vill endilega að ég bloggi áfram endilega gefið ykkur fram... nenni ekki að skrifa blogg bara fyrir 3-4 einstaklinga

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 00:06:49 / Gaui

Allir á Broadway...............

Hér er auglýsingin fyrir barnaskóla ballið en á eftir að finna fyrir menntaskóla dæmið...

allir að mæta.

Ramses verður Kinkandi Kolli ásamt gestum í showinu, ekki missa af þessu, því þið munið ekki sofa vel aftur af eftirsjá.

peace


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 11:20:22 / Gaui

Big Proof R.I.P.

 Jæja enn og aftur bloggar maður og talar um sorgar atburð. Einn af mínum uppáhalds röppurum Detroit rapparinn DeShaun Holton a.k.a Proof, a.k.a Derty Harry var skotinn í síðustu viku. Hiphopið missir enn anna hermanninn fyrir ofbeldi götunnar og eitt er víst að þetta er bókað ekki í síðasta skipti sem þetta gerist.

Big Proof R.I.P.

En hvað segiði annars? Allt sæmilegt að frétta af mér. Kominn á fullt í að koma mér í leikæfingu fyrir sumarið hlakka til að geta spilað fullt af fótbolta. Ég elska fótbolta. Mitt lið Man Utd. eru að standa sig vel fyrir utan skelfilegu úrslitin sem kom úr leiknum gegn Sunderland á Föstudaginn langa.

Nóg að gerast hjá mér, fótboltinn byrjaður á ný, skólinn að vera búinn sem þýðir að ég þufi að læra eins og mothafucka ef ég ætla ekki að klúðra þeim. Nóg að gerast í tónlistinni. er að spila á tónleikum 25,26 og 27 apríl. Það verður helvíti magnaður andskoti að sjá showið sem ég býð upp á. fullt af lögum sem þið hafið ekki heyrt áður. Endilega tjékkið það. Ég mun auglýsa þetta betur þegar nær dregur.

Djöfull hleypur tíminn hratt frá manni. Það er alveg fáranlegt. Maður er nýbúinn í jólaprófunum og strax komin vor próf og ef maður klúðrar einhverju þar þá þarf maður að taka sig saman í andlitinu og klára þetta drasl í sumarprófi.

Djöfull ætla ég að fara í sund í dag þegar ég er búinn að taka úti hlaupið mitt. Verð að leggjast í góðan pott til að slaka á.

peace


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 23:45:37 / Gaui

Miðvikudagurinn 5 apríl

Sæl, ég hef ekki mikið skrifað upp á síðkastið þar sem ég hef einfaldlega ekki nennt því og bara bloggað hina sorgar frétt með Pétur félaga minn. Hann var jarðaður í dag og þetta var alveg svakalega erfitt. Ég hef misst marga ættingja á öllum aldri og sú yngsta var 12 ára frænka mín. Þetta var erfiðasta jarðaför sem ég hef nokkurn tíman farið í. Minningar um Pétur þutu um huga minn og var þetta rosalega erfið stund. Núna er hann kominn á betri stað. Ég veit að guð ætlar honum eitthvað mikilvægara verk, það getur ekki annað verið því Pétur var eðal maður og öllum góður. Ég ætla samt ekki að skrifa mikið meira um hann. Vill samt segja eitt... Ég mun sakna Petta. Ég veit að við vorum ekkert bestu vinir, en góðir félagar vorum við og alltaf er mikil eftirsjá að kveðja góðan félaga, því hef ég fengið að kynnast seinustu vikuna. Vera alveg rosalega erfitt.

Ég vill segja eitt hér á blogginu mínu við ykkur öll sem þykir vænt um mig. Mér þykir ótrúlega vænt um alla vini mína og félaga svo þið vitið það... ég er alltaf til staðar fyrir okkur ef ykkur vantar hjálp á einhvern hátt. Ég er ykkar homie og ég vona að ég geti sömuleiðis alltaf fengið hjálp frá ykkur ef ég þyfti á henni að halda. Ég elska líka út af lífinu mínu fjölskylduna mína... Mömmu, Pabba, Sævar og Arnar. Ég gæti ekki verið heppnari með fjölskyldu held ég. Þórunn ég hef oft sagt við þig og ég segi það aftur og mun halda áfram að segja það... ég elska þig. Ég er alltaf hérna fyrir ykkur öll... hvort sem þið eruð kærasta mín, fjölskylda, tengdafjölskylda, skyldmenni, vinir eða félagar.

Ég ætla ekki að halda mig við að opna mig lengur. Nema að ég er loksins orðinn leikfær til að spila knattspyrnu aftur´. Ég get ekki beðið eftir því að byrja að spila fótbolta á ný. Þeir sem þekkja mig vita að líf mitt snýst um fótbolta og tónlistina. Ég hef ákveðið að nota líf mitt eins og ég vill hafa það. Ég vill geta sagt börnum mínum og barnabörnum frá afrekum sem ég hef náð í gegnum tíðina. Vill geta verið stoltur að segja hvernig mér gekk í fótboltanum eða í rappinu.

Vá ég er búinn að taka út ævi skammt að væmni. ´Ætla mér að ljúka þessu bloggi með smá væmni,

Elska ykkur öll

kv.

Gaui


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 20:08:21 / Gaui

Hvíldu í friði kæri félagi

Í gærdag fannst Pétur Benediktsson, Bliki, Hkingur, Reynismaður og vinur okkar allra látinn. Leitað hafði verið af honum frá því í gærkvöldi. Við viljum votta öllum aðstandendum okkar dýpstu samúðar

.

Ég var einn af einn af þeim heppnu mönnum sem fékk að kynnast Pétri. Ég var í MK á sama tíma og Pétur og við æfðum fótbotla hjá Blikum saman á sínum tíma í 2. flokki. Hann var ekki bara knattspyrnumaður heldur gat strákurinn sungið vel, og man ég eftir honum að syngja nokkrum sinnum á viðburðum tengdum MK.

Þegar maður heyrði þessar fréttir með Pétur trúði maður þessu einfaldlega ekki. Maður átti ekki til orð. Maður neitaði að trúa þessu og hugsaði, afhverju? Ég hugsa ennþá afhverju og mun örugglega alltaf hugsa afhverju?

Ég vill votta öllum aðstandendum, vinum og öllum sem að þekkja Pétur á einhvern hátt mínar dýpstu samúðarkveðju.

Mátt hvíldu í friði félagi, og bið að heilsa 2pac og George Best ef þú hittir þá í himnaríki.

kv.

Þinn Félagi

Guðjón


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 20:17:02 / Gaui

Gangsta!!!!!!!!!!!!

Whut´s up??

Sorry hvað er langt síðan að ég bloggaði. Síðan ég bloggaði seinast hefur margt gott gerst. Chelsea komst ekki í 8 liða úrslitin, United unnu deildarbikarinn, lagið mitt Kinkaðu Kolli er orðið líklegt til vinsælda á Flass FM. Bob Dylan verður á Hróaskeldu það er geggjað. Eins og ég segi er allt gott að frétta héðan.

Geiri lánaði mér dóp mynd sem er 3 diska pakki. Heitir hiphop Immortals og fjallar hver diskur um sig um einn rappara og rappararnir 3 eru Big Pun, Biggie og 2 pac. Já þeir eiga allt það sameiginlegt að vera ekki á lífi í dag, ekki skemmtilegt það.

Tónleikar á laugardaginn á Gauk á Stöng. Ég er að spila þar og kynni slatta af nýju efni. Endilega komið og kíkið á það, kostar aðeins 500 krónur inn. KOMIÐ ÞANGAÐ og KINKIÐ KOLLI


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 12:09:18 / Gaui

Gun BLAST!!!!!

Góðan daginn

Gærdagurinn var magnaður, en morgunin í dag er ekki magnaður. Fór á árshátíð sem var frábær. Vídeómarkaðsfólkið fór saman á uppskeruhátíð myndbandaleiganna. Svampur Sveinsson vann ekkert :^) en damn hvað maturinn var góður. Þetta var of geggjað maður. Við vorum sótt í fyrirpartýið á Gula Hummer Limmanum. DAMN!! það var Pimpin! Vorum ekki sátt með músíkina svo einn hringdi upp í FM og fékk My name með Snoop og þá var rétta stemmingin komin. Damn ég er kominn með hálsbólgu, en aftur á topic... hafði ekki tekið jafn gott fyllerí lengi. Maður þekkti óhemju marga í bænum.

Damn hvað þetta Gun Blast lag með El da Sensei er geggjað.

Man Utd vs. Wigan í dag. Það verður magnaður andskoti að fá eina titilin okkar. Ég er að fara til Bjössa ég er að hugsa núna málið hvort ég eigi að nenna að laga hjólið mitt og hjóla til hans til að losna við Bjór gærdagsins af maganum. United vinnur leikinn 3-0 vill ég segja. Ég er samt að fíla Wigan liðið mjög mikið og yrði samt bara stoltur af þeim ef þeim myndi takast að rífa einn titil með sér heim. Við United menn samt eigum þennan skilið og ég veit alveg að ég þarf ekki að vera stoltur af Wigan þar sem hetjurnar mínar eru að spila.

28 febrúar skula allir horfa á kastljós. Ramses kemur þangað og performar lag. Lag sem fer í almenna spilun á morgun (mánudaginn 27. feb).

Peace 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 12:03:06 / Gaui

Þú ert rappstjarna

l/læs

Merkilegt skrifaði Sæl/l aftur á bak í inngangskveðjunni minin og það lýtur úr eins og Næs. Í dag er föstudagur, það er magnað, ég er að passa litlu bræður mína  núna og það er smooth að tjilla aðeins með þeim litlu.

Á morgun í hádeginu er stórleikur í sjónvarpinu, leikur á Sýn á milli Manchester United og Liverpool. Síðan að þessi dráttur fór fram hef ég sagt það að það lið sem vinnur þennan leik verður bikarmeistari. Chelsea á engang séns í þennan bikar, þeir fá bara deildina núna í ár. Kominn tími á að Barcelona hirði Evrópukeppnina.

Ég er að skifa fyrsta textan minn í mánuð núna. Seinasti texti sem ég skrifaði var í laginu Kinkaðu Kolli sem er feat. Maximum og einhverjir ættu að hafa heyrt(ef ekki er það á www.myspace.com/herraskitsama). Textinn sem ég er að skrifa er við lag sem heitir hvað þykist þú geta dæmt mig? þar sem ég er að svara fyrir allri gagnrýni sem að ég fæ, ekki rapplega heldur bara í lífinu. Líka fyrir 1 og hálfu ári sá ég þetta þegar það var birtur linkur á b2.is undir narninu hvítur svertingi http://hi.is/~jonfi/myndir/myndir.php?a=040924%20KGRP%20haustlaukar&m=53 Mér er skítsama yfir höfuð með þessa mynd og finnst ekkert að henni, en að sjá sum kommentin þarna sem fólk er að hneykslast á mér og kalla mig ýmsum nöfnum, ég er ekki að fíla þá motherfuckera.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 14:35:07 / Gaui

Sunnudagur kominn strax

jæja... WHut up Pimps?

Ég tók þessa helgi edrú og rólega. Leit samt í party í gær, og damn núna veit ég afhverju maður þarf alltaf að drekka í partyum. Maður fær hausverk og maður skilur ekki hvernig fólk getur orðið svona vitlaust:klikk:. Fyndið shit samt. Tók rölt í bænum með Þórunni konunni minni og við fórum inn á staðinn kaffi Victor fyndinn staður. Það voru bara gamalt fólk og hnakkar þarna. Fyndin blanda og svo eitthvað af kvensum en þær voru allar í eldri kantinum.

Lagið Kinkaðu Kolli fer í almenna spilun á útvarpsstöðinni Flass fm. Ég er að vinna í myndbandi við það líka. Þetta er fyrsti Single af Virtu Það LP sem kemur út árið 2006.

Ég er orðinn svo latur við að skrifa texta. Mig vantar fleirri beats. Geri fullt af beats sjálfur en stór hluti þeirra eru annað hvort drasl eða ég læt einhvern annan fá hann.

Ég er kominn upp í 200 gesti á dag, það er magnað, er kominn með 15.000 gesti síðan að þessi síða byrjaði í lok nóvember 2004. Mér finnst það magnað. Endilega haldið áfram að kommenta og skrifið í gestabókina ef þið viljið kasta Shout outi út, slæmu eða góðu I don´t give a fuck

Farinn að éta Pizzu með Geira

peace


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 18:35:15 / Gaui

...

Vááááá... klukkan er 18.30 og komnir 170 gestir á bloggsíðuna mína nú þegar, god damn það er slatti.

Ég vill að Silvía Nótt vinni undankeppni Eurovision, ég vildi það strax og ég heyrði að hún myndi taka þátt í þeirri keppni, svo er þetta lag líka stórskemmtilegt, allavega fyndið.

Vikan er að verða búin... ég fer á Þorrablót á Laugardaginn með fjölskyldunni, það verður magnaður andskoti. Alltaf gaman að hitta familíuna og fá sér 2-3 öllara. Hvað ætliði að gera um helgina? Örugglega einhver af þesum 170 sem hafa komið á síðuna sem ætla að gera eitthvað.

Í gær var lagið mitt Kinkaðu Kolli spilað í hiphop þættinum Orð. Ég hef bara fengið jákvæð viðbrögð, sem er auðvitað jákvætt. Maðurinn með mér í laginu er Íslenska hiphop goðsögnin Maximum sem smíðaði taktinn og rappar á móti mér í þessu lagi. Ég skelli þessu lagi líklegast inn á myspace síðuna mína um helgina.

Ég þoli ekki Robbie Savage... Hann er lélegur ræfill sem spilar svo skíthælalega knattspyrnu.... andskotinn!!!!

Jæja, bið að heilsa að sinni... læt heyra í mér sem fyrst

peace


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 17:57:14 / Gaui

baaabara

Hallú....

Ísland vann Rússland áðan og ég var MJÖG sáttur við það. Fer alltaf til ömmu að horfa á landsleiki í handbolta því það er of skemmtilegt að sjá hvað hún lifir sig inn í leikinn. Algjör snilld. Frábært að sjá stemminguna í íslenska hópnum greinilega sterk liðsheild og hún er að skila árangri, enda eigum við fullt af góðum handbolta gaurum. Ég vill sjá Karl Jóhann úr ÍR fara í vörnina(Kalli þú skuldar mér mat fyrir þetta).

Fór út á lífið á Laugardagskvöldið tjillaði hjá Steina fyrst um sinn og fór svo í party heima hjá Ella og Krumma þeir leiga saman íbúð. Fórum svo á Oliver og þar heyrði ég spilað Ice Ice Baby og Can´t Touch this, já ég er ekki að ljúga. Þetta var ég ekki að meika né restin af hópnum svo við fórum á Kaffibarinn, þar var þröngt á þingi og asnalegt Gimp helti rauðvíni á mig, Verst að ég fattaði það of seint. Sá einhvern asnalegan með Rauðvín rétt hjá mér og svo þegar ég var að fara út sá ég rauðvínsbletti í Hvítu Ecko peysunni minni. EKKI SÁTTUR!!

Annað kvöld þá er hiphop þátturinn ORÐ. Ég og Maximum kynnum nýtt lag og lendum í smá spjalli líklegast. Þátturinn er á milli 22-00 á 104,5

getið hlustað á þáttinn á netinu en það er betur auglýst á hiphop.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2006 21:50:49 / Gaui

...

Shiiiit, ég ætlað iað segja svo margt en man ekki eftir neinu sem ég ætlaði að skrifa. Ég er allavega kominn með lagið með okkur Max sem er bara mjög gott lag. Ég er alveg orðinn rosalega þreyttur á að eyða öllum helgum í Vínbúðinni að vinna. En mig vantar peninga svo ég geti gefið plötuna mína út einhver tíman. Kostnaður er mikill. Líka Jákvætt hvað maður lærir mikið á vín þarna, gaman að þekkja bakgrunn ýmissa Rauðvína. Ég er að fara til my Homie Steinn. Menn eru þar með öl á borðum og auðvitað er maður ekki minni maður. Ætla að kíkja kannski í bæjinn. Í gær fór ég í bæjinn, Hverfisbarinn er orðinn góður... samt damn hvað er fyndið hvað allir eru eins klæddir allsstaðar. Fáranlegt... kannski ástæða fyrir framhjáhaldi hjá mörgum. eftir nóg af alkahóli þekkir fólk ekki maka sinn alveg nógu og vel og sér einhvern í fötum svipuðum og þeim sem að makinn á.... Þetta er bara pæling. Kominn með miða til Danmerkur 29 júní til 13 júlí. Ég er að fara á Hróaskeldu aftur og núna í ár er enginn annar en Kanye West að spila og það er mothafucking dope. Ég er að fara með Ása vini mínum sem er einnig þekktur sem Ástþór Óðinn eða Iceberg. KOmnir svo með gistingu í Köben, mothafucka þetta verður geggjuð ferð og ég er að plana það að versla mér einn alwissam jakka. Ég er út, konan er að koma... peace

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9