Í dag er stór dagur, móðir mín er orðin hálfrar aldar gömul í
dag. Merkilegur áfangi það... Í nótt er fyrsta nótin í meira en 3
vikur sem ég sef meira en 5-6 tíma... ég fór yfir 10 tíma
svefn sem var alveg ÓGEÐSLEGA þægilegt. Vaknaði og er búinn að
horfa á 2 bíómyndir í dag... það eru Hostel og Betrailed (held að
hún heitir það með Clive Owen og Jennifer anniston, og jú RZA og
Xzibit). Fínar myndir báðar tvær og góðar hugmyndir á bakvið
þær.
Ég átti að spila í party í kvöld en ég dró mig út úr
dagskránni... og ekkert meira um það að segja. Ég er líklegast að
spila um versló út á landi og svo á menningarnótt líklegast líka að
spila og þá í bænum. Á eftir fer ég að taka upp skot fyrir
myndbandið mitt við Kinkaðu Kolli( ég veit að það er langt síðan að
lagið var í spilu), seint er betra en aldrei.
2 partý í kvöld... damn það verður fjör en er ekki ennþá búinn
að ákveða hvort ég drekki eða ekki... kemur í ljós, en hey það er
frítt vín... ég hef ekki sagt oft nei við því hingað til.